Fósturfjölskylduhelgi í Vatnaskógi að vori 2025
fös., 16. maí
|Vatnaskógur, 301, Iceland
Við höldum enn eina ferðina í Vatnaskóg og eigum þar dásamlega helgi í góðum félagsskap


Staður & stund
16. maí 2025, 16:30 – 18. maí 2025, 16:00
Vatnaskógur, 301, Iceland
Um viðburðinn
Við endurtökum leikinn - fósturfjölskylduhelgi í Vatnaskóg verður haldin að vori 2025, helgina 16.-18. maí.
Skráning fer fram hjá Vatnaskógi og má finna með að smella hér. Athugið að helgin er eingöngu fyrir félagsfólk í Félagi fósturforeldra og fjölskyldur þeirra (ömmur og afar velkomin). Verð er 16.900 kr. á mann en frítt er fyrir 6 ára og yngri. Hámarksverð fyrir fjölskyldu er 48.500 kr. Athugið að verð birtist sem 0 kr. við skráningu en Vatnaskógur sendir greiðsluhlekk til þeirra sem skrá sig eftir á.
Frábær helgi í fallegu umhverfi. Stútfull dagskrá af gleði og glaum fyrir þau yngri og fræðslu og félagsskap fyrir þau eldri. Við birtum nánari dagskrá þegar nær dregur en síðast fengum við leikhóp til okkar, blaðrarann og fræðslu fyrir fullorðna fólkið ásamt allri hinni hefðbundnu dagskrá sem Vatnaskógur hefur upp á að bjóða.
Á staðnum er frábær gistiaðstaða. Hver fjölskylda fær sitt eigið herbergi en þarf að…